M – Ég er ósammála.
V – Sæll, hvað segir þú?
M – Ósammála.
V – Hverju?
M – Bara ósammála hverju sem er.
V – Já svoleiðis.
M – Þangað til eitthvað gerist.
V – Hvað ætti svo sem að gerast?
M – Gos, stórslys eða önnur hamfarakreppa. Alltaf smá léttir þegar ég heyri af gosi. Kreppur staðfesta vitleysuna en auðvitað lagast ekkert. Gosið varir smá tíma og kreppuskjálftinn hættir flótlega þó ástandið versni frekar. Stöðnun er leiðinleg en stökkbreytingar skemmtilegar.
V – En hvað með að góðir hlutir gerist hægt?
M – Ef það væri nú eittvhvað til í því. Ég veit ekki betur en vondir hlutir geti líka gerst hægt þó þeir séu reyndar á fljúgandi ferð niður á við.
V – Þú er bara svatsýnn.
M – Ég er ósammála.
V – Já ég hef heyrt það.
M – Heyrt hvað?
V – Að þú sért ósammála.
M – Já.
V – Ertu þá sammála því.
M – Ég fer ekki í þennan leik.
V – Humm
M – Humm hvað?
V – Bara humm.
M – Þú ert asni.
V – Asnar humma ekki.
M – Hvað veist þú um það?
V – Ég hef aldrei séð það í bíómyndum. Hummandi asnar. Það væri líka grínmynd.
M – Þú er líka grín.
V – Það er gott að þú hefur einnhvern til að tala við.
M – Farðu til fjandans.
V – Þetta er nú óþarfi.
M – Mig langaði bara að segja það.
V – Það spáir kólnandi í næstu viku.
M – Það er gott.
V – Ef þú ættir afmæli, hvað vildir þú helst…
M – Rottugildru.
V – En hér eru engar rottur.
M – Þú!
V – Er það svona gildra með nammi.
M – Já.
V – Hvað?
M – Súkkulaðikaka með rjóma.
V – Drepst ég?
M – Nei, þú fitnar.
V – Þetta var fantabragð.
M – Já, það tekur því ekki að tala þig til. Þú ert asni en það er líka allt í lagi.
V – Þetta er það fallegasta sem ég hef heyrt frá þér lengi.
M – Þú veist, það er mánudagur á morgun.
V – Láttu mig þekkja það.